Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   mán 02. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu glæsilega markvörslu Neco Williams
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Velski bakvörðurinn Neco Williams var skúrkurinn í jafnteflisleik Nottingham Forest gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Heimamenn í Nottingham leiddu þegar gestirnir frá London fengu hornspyrnu og var skalli frá Jefferson Lerma á leið í netið þegar Williams tók upp á því að verja boltann með hendi.

Williams skutlaði sér og varði boltann með tilþrifum en hann hefur gleymt því að hann er ekki markvörður. Því var dæmd vítaspyrna og rautt spjald.

Ismaila Sarr skoraði örugglega af vítapunktinum en Palace tókst ekki að brjóta þéttan varnarmúr Forest á bak aftur í seinni hálfleiknum, þess í stað voru heimamenn sterkari aðilinn þrátt fyrir að vera manni færri. Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 1-1.

Magnaða markvörslu Williams má sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner