Tottenham 2 - 2 Man City
0-1 Rayan Cherki ('11)
0-2 Antoine Semenyo ('44)
1-2 Marc Guehi ('53, sjálfsmark)
2-2 Dominic Solanke ('70)
0-1 Rayan Cherki ('11)
0-2 Antoine Semenyo ('44)
1-2 Marc Guehi ('53, sjálfsmark)
2-2 Dominic Solanke ('70)
Tottenham tók á móti Manchester City í afar spennandi úrvalsdeildarslag í dag og voru gestirnir sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.
Rayan Cherki fékk að skora auðvelt mark snemma leiks þar sem Radu Dragusin sýndi afar slakan varnarleik og tvöfaldaði Antoine Semenyo forystuna skömmu fyrir leikhlé, eftir hörmulega sendingu frá Dragusin.
Bernardo Silva slapp í gegn og rúllaði boltanum yfir á Semenyo sem skoraði í autt markið. Staðan var því 0-2 í leikhlé en heimamenn vöknuðu til lífsins í seinni hálfleik.
Dominic Solanke slapp í gegn eftir frábæran bolta yfir vörnina frá Xavi Simons, en átti enn eftir að gera mikið til að koma honum í netið. Solanke lagði boltann fyrir sig en Marc Guéhi var mættur í tæklinguna og tæklaði boltann óvart framhjá Gianluigi Donnarumma og í eigið net.
Tottenham var sterkara liðið í seinni hálfleik en það var lítið í gangi þegar Solanke skoraði glæsilegt jöfnunarmark á 70. mínútu, eftir frábæran undirbúning frá Conor Gallagher.
Gallagher gerði mjög vel að stela lausum bolta á vallarhelmingi City. Hann komst upp hægri kantinn og gaf fyrirgjöf sem fór þó aðeins fyrir aftan Solanke. Það gerði lítið til því framherjinn náði að reka hælinn í boltann til að skora einskonar sporðdrekamark sem Donnarumma réði ekki við.
Bæði lið reyndu að sækja sigurmark á lokakaflanum og voru heimamenn hættulegri, en boltinn rataði þó ekki í netið svo lokatölur urðu 2-2.
Man City er í öðru sæti úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Arsenal sem lagði Leeds af velli í gær.
Tottenham er í neðri hlutanum með 29 stig eftir 24 umferðir, níu stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir




