Það virðist svo gott sem staðfest að Kolbeinn Birgir Finnsson er á leið til Vålerenga í Noregi eftir misheppnaða dvöl hjá FC Utrecht.
Kolbeinn hefur aðeins fengið að spreyta sig í tíu keppnisleikjum á einu og hálfu ári í hollenska boltanum og hefur því ákveðið að snúa aftur til Skandinavíu.
Hann gerði flotta hluti hjá Lyngby í danska boltanum áður en hann var keyptur yfir til Utrecht, en Kolbeinn hefur einnig verið samningsbundinn Brentford, Borussia Dortmund og Groningen á ferlinum.
Kolbeinn er 26 ára vinstri bakvörður, uppalinn hjá Fylki, sem á 14 landsleiki að baki fyrir Ísland eftir að hafa verið mikill lykilmaður upp yngri landsliðin.
30.01.2026 15:51
Íslenskir vinstri bakverðir að færa sig um set erlendis
Athugasemdir



