Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Frank um Solanke: Söknuðum hans sárlega
Mynd: Twitter
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Thomas Frank þjálfari Tottenham var mjög ánægður með sína menn sem náðu jafntefli gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Man City komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en Tottenham var sterkari aðilinn eftir leikhlé og verðskuldaði að næla sér í stig.

Stuðningsmenn Tottenham mótmæltu hástöfum úr stúkunni þar sem þeir eru ósáttir með stjórn félagsins. Þeir vildu fá nýja leikmenn inn í janúarglugganum og eru ósáttir með hátt miðaverð á heimaleiki liðsins.

Stór hluti stuðningsmanna Tottenham ætlaði að yfirgefa leikvanginn í síðari hálfleiknum en hætt var við áformin þegar liðið sýndi flotta frammistöðu og náði að skora tvö mörk til að jafna metin.

Eftir leikslok sátu áhorfendur eftir í stúkunni og sungu saman, tæpri klukkustund eftir að þeir ætluðu að yfirgefa leikvanginn í tugþúsundatali.

„Við getum skapað töfra saman þegar við sameinumst eins og gerðist í dag eða gegn Dortmund," sagði Frank eftir jafnteflið.

„Stemningin og ákefðin í stuðningsmönnum er það sem gaf leikmönnum orku til að spila svona góðan seinni hálfleik. Ég er mjög ánægður með baráttuandann, við sýndum að það er mikilvægt að gefast aldrei upp í fótbolta.

„Við erum á réttri braut, við erum stöðugt að verða betri og að tengja betur við stuðningsmenn."


Tottenham er aðeins í 14. sæti úrvalsdeildarinnar með 29 stig eftir 24 umferðir en tókst þó að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á dögunum.

Framherjinn Dominic Solanke er kominn aftur úr meiðslum og búinn að skora fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum í öllum keppnum.

„Það er augljóst að við höfum saknað Dom (Solanke) sárlega. Hann er búinn að vera fjarverandi í fimm eða sex mánuði en núna getur hann hjálpað okkur. Fjögur mörk í fjórum leikjum segir allt sem segja þarf og hann er ekki einu sinni kominn í fullkomið leikform. Hann gat ekki hlaupið síðasta korterið áður en hann fór útaf."

Frank er bjartsýnn fyrir seinni hluta tímabilsins þrátt fyrir hörmulega stöðu í úrvalsdeildinni.

„Við höfum verið svolítið óheppnir með úrslit en ég er viss um að þetta mun breytast til hins betra á næstunni. Ég er ánægður með að við séum ósigraðir í fjórum leikjum í röð, þetta er eitthvað sem við verðum að byggja á."
Stöðutaflan Evrópa Meistaradeildin
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 8 8 0 0 23 4 +19 24
2 Bayern 8 7 0 1 22 8 +14 21
3 Liverpool 8 6 0 2 20 8 +12 18
4 Tottenham 8 5 2 1 17 7 +10 17
5 Barcelona 8 5 1 2 22 14 +8 16
6 Chelsea 8 5 1 2 17 10 +7 16
7 Sporting 8 5 1 2 17 11 +6 16
8 Man City 8 5 1 2 15 9 +6 16
9 Real Madrid 8 5 0 3 21 12 +9 15
10 Inter 8 5 0 3 15 7 +8 15
11 PSG 8 4 2 2 21 11 +10 14
12 Newcastle 8 4 2 2 17 7 +10 14
13 Juventus 8 3 4 1 14 10 +4 13
14 Atletico Madrid 8 4 1 3 17 15 +2 13
15 Atalanta 8 4 1 3 10 10 0 13
16 Leverkusen 8 3 3 2 13 14 -1 12
17 Dortmund 8 3 2 3 19 17 +2 11
18 Olympiakos 8 3 2 3 10 14 -4 11
19 Club Brugge 8 3 1 4 15 17 -2 10
20 Galatasaray 8 3 1 4 9 11 -2 10
21 Mónakó 8 2 4 2 8 14 -6 10
22 Qarabag 8 3 1 4 13 21 -8 10
23 Bodö/Glimt 8 2 3 3 14 15 -1 9
24 Benfica 8 3 0 5 10 12 -2 9
25 Marseille 8 3 0 5 11 14 -3 9
26 Pafos FC 8 2 3 3 8 11 -3 9
27 St. Gilloise 8 3 0 5 8 17 -9 9
28 PSV 8 2 2 4 16 16 0 8
29 Athletic 8 2 2 4 9 14 -5 8
30 Napoli 8 2 2 4 9 15 -6 8
31 FCK 8 2 2 4 12 21 -9 8
32 Ajax 8 2 0 6 8 21 -13 6
33 Frankfurt 8 1 1 6 10 21 -11 4
34 Slavia Prag 8 0 3 5 5 19 -14 3
35 Villarreal 8 0 1 7 5 18 -13 1
36 Kairat 8 0 1 7 7 22 -15 1
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner
banner