Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 01. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kristjana framlengir við HK
Kvenaboltinn
Mynd: HK
Kristjana Ása Þórðardóttir hefur framlengt samning sinn við HK og verður því áfram hjá félaginu næstu tvö keppnistímabil.

Kristjana, 20 ára, er uppalin í HK og lék 9 leiki með liðinu í Lengjudeildinni í fyrra.

Hún hefur alla tíð verið hjá HK að undanskildu hálfu sumri 2024 þegar hún fór til Fjölnis á lánssamningi.

Kristjana leikur sem varnarmaður og fagnar HK því að hún sé búin að framlengja samningi sínum.

„Kristjana er uppalin í HK, þar hefur hún spilað upp alla yngri flokkana ásamt því að hafa komið inn í meistaraflokk kvenna aðeins 15 ára gömul. Hún á því fjölmarga meistaraflokks leiki að baki ásamt því að hafa tekið þátt í verkefnum fyrir yngri landslið Íslands," segir meðal annars í tilkynningu frá HK sem má sjá hér að neðan.


Slapp
banner
banner
banner