Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 01. maí 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo svarar Demiral: Ekki gott fyrir deildina
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo skoraði annað marka Al-Nassr í 2-0 sigri í stórleik gegn Al-Ahli á miðvikudaginn.

Hann fékk veður af ummælum Merih Demiral eftir leikinn þar sem varnarmaðurinn gagnrýndi dómgæsluna í sádi-arabísku deildinni harðlega. Hann sakaði dómarana um að gera allt í sínu valdi til að hjálpa Al-Nassr að vinna titil.

„Þetta er ekki stríð og þetta er ekki gott fyrir deildina. Allir að kvarta og birta færslur á samfélagsmiðlum, þetta er ekki góð þróun," sagði Ronaldo.

„Þetta er ekki markmið Saudi Pro League. Við verðum að hætta þessari hegðun ef við viljum berjast við stærstu deildirnar í Evrópu.

„Við berjumst til að vinna en sumir hlutir sem við sjáum eru ekki góðir, þetta er ekki fótbolti. Það má ekki segja og gera hvað sem er, ég mun tala betur um þetta eftir tímabilið."


Ronaldo fór svo í smá spjall við Rio Ferdinand og ítrekaði ummælin.

„Eftir tímabilið mun ég tala um mikið af alvarlegum málefnum. Ég var sá fyrsti til að koma í þessa deild og allir aðrir fylgdu útaf mér. Þeir verða að bera virðingu fyrir dómurunum þó að þeir geri mistök. Dómarar eru mennskir og geta gert mistök."

   30.04.2026 20:12
Brjálaður eftir tapið: Dómgæslan er til skammar

Slapp
banner
banner
banner