Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 01. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Sevilla í bráðri fallhættu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er ótrúlega jöfn fallbarátta í gangi í spænska boltanum þar sem aðeins sex stig skilja liðið í 11. sæti efstu deildarinnar að frá liðinu í 19. sæti.

Það eru aðeins fimm umferðir eftir af tímabilinu og er sögufrægt lið Sevilla í fallsæti sem stendur.

Girona spilar við Mallorca í fallbaráttuslag í kvöld áður en Levante heimsækir Villarreal og Valencia fær mögulega varalið Atlético Madrid í heimsókn, þar sem Diego Simeone þjálfari gæti hvílt lykilmenn fyrir undanúrslit Meistaradeildinnar á Emirates.

Athletic Bilbao heimsækir nágranna sína í fallbaráttuliði Alavés og þarf Athletic sárlega á sigri að halda í baráttunni um Evrópusæti, áður en Spánarmeistarar Barcelona spila við Osasuna.

Getafe og Celta Vigo eiga heimaleiki í baráttunni um sæti í Sambandsdeildinni og eru aðeins fimm stigum fyrir ofan andstæðinga helgarinnar, en andstæðingarnir eru í fallbaráttu. Deildin á Spáni hefur verið ótrúlega jöfn á tímabilinu.

Real Madrid mætir til leiks á sunnudagskvöldið áður en Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad eiga lokaleik helgarinnar kvöldi síðar.

Sociedad er ekki í neinni sérstakri baráttu eftir að liðið vann óvænt spænska bikarinn í fjórða sinn í sögunni. Sá sigur gefur liðinu þátttökurétt í deildarkeppni Evrópudeildarinnar næsta haust.

Orri og félagar heimsækja Sevilla sem er óvænt í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.

Föstudagur
19:00 Girona - Mallorca

Laugardagur
12:00 Villarreal - Levante
14:15 Valencia - Atletico Madrid
16:30 Alaves - Athletic Bilbao
19:00 Osasuna - Barcelona

Sunnudagur
12:00 Celta Vigo - Elche
14:15 Getafe - Rayo Vallecano
16:30 Real Betis - Real Oviedo
19:00 Espanyol - Real Madrid

Mánudagur
19:00 Sevilla - Real Sociedad
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 33 28 1 4 87 30 +57 85
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 33 20 5 8 59 38 +21 65
4 Atletico Madrid 33 18 6 9 56 37 +19 60
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 33 11 11 11 45 43 +2 44
7 Getafe 33 13 5 15 28 34 -6 44
8 Real Sociedad 33 11 10 12 52 52 0 43
9 Osasuna 33 11 9 13 39 40 -1 42
10 Athletic 33 12 5 16 36 48 -12 41
11 Vallecano 33 9 12 12 33 41 -8 39
12 Valencia 33 10 9 14 37 48 -11 39
13 Espanyol 33 10 9 14 37 49 -12 39
14 Elche 33 9 11 13 44 50 -6 38
15 Girona 33 9 11 13 36 50 -14 38
16 Alaves 33 9 9 15 38 49 -11 36
17 Mallorca 33 9 8 16 41 51 -10 35
18 Sevilla 33 9 7 17 40 55 -15 34
19 Levante 33 8 9 16 37 50 -13 33
20 Oviedo 33 6 10 17 26 51 -25 28
Slapp
banner
banner
banner