Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. október 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tierney tilbúinn að spila sinn annan leik fyrir Arsenal
Kieran Tierney.
Kieran Tierney.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Arsenal fá væntanlega að sjá bakvörðinn Kieran Tierney spila í kvöld þegar Arsenal leikur gegn Standard Liege frá Belgíu í Evrópudeildinni.

Tierney hefur aðeins komið við sögu í einum leik fyrir Arsenal frá því hann var keyptur frá Celtic í sumar.

Hann spilaði gegn Nottingham Forest í deildabikarnum í síðustu viku, en missti svo af leiknum gegn Manchester United á mánudag. Hann er klár í slaginn fyrir kvöldið.

„Hann þarf enn tíma, sjálfstraust, æfingu og leiki. Það er gott tækifæri á morgun, hann er tilbúinn að spila," sagði Unai Emery, stjóri Arsenal í gær.

Hinn 22 ára gamli Tierney mun þó ekki taka þátt í næsta landsliðverkefni Skotlands. Emery segir að hann sé ekki tilbúinn í það.

Spænski bakvörðurinn Hector Bellerin gæti einnig spilað fyrir Arsenal í dag ef hann treystir sér í það. Bellerin er einnig að koma úr meiðslum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner