Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   þri 04. júní 2013 13:24
Elvar Geir Magnússon
Heimir Hallgríms: Slóvenarnir hafa fundið sína galla
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Heimi Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjáfara fyrir æfinguna í dag en Heimir fór út og sá Slóvena vinna Tyrki 2-0 í æfingaleik um síðustu helgi. Þó Slóvenarnir séu úr leik í baráttunni í riðlinum má búast við því að þeir mæti öflugir gegn Íslandi á föstudag.

„Þeir voru mjög seigir. Þeir gallar sem við fundum á þeim fyrir leikinn úti, þeir hafa greinilega séð þá líka og eru búnir að vinna í því að útiloka sína galla. Við verðum að finna nýjar leiðir í gegnum þá," sagði Heimir.

„Þessi leikur við Tyrki var vináttuleikur en þeir voru þrátt fyrir það mjög grimmir og fastir fyrir. Þeir voru grófir í rauninni. Við vitum því alveg við hverju má búast á föstudaginn. Ég er alveg pottþéttur á því að þeir muni hirða fleiri stig það sem eftir er af þessum riðli."

Æfing íslenska liðsins í dag fór fram í Kórnum en upphaflega átti hún að vera á Laugardalsvelli en var færð vegna veðuraðstæðna.

„Þetta er skynsamlegt, það er taktísk æfing í dag og það heyrist ekkert þegar verið er að garga í þessu roki," sagði Heimir en viðtalið má sjá í heild i sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner