„Blikar fengu fullt af færum til að skora þrjú mörk í þessum leik þó mörkin hafi komið í restina. Þeir voru búnir að skjóta tvisvar í stöng og Aron bjargaði okkur líka á síðustu stundu. Þetta var mjög skrítinn leikur og þó við höfum komist í 3-1 og svo 4-1 fannst mér við ekki eiga að vera svona mikið yfir því blikar voru meira með boltann og sköpuðu mikið meira en við," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 3-4 sigur á Breiðabliki í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 4 KR
„Við nýttum okkar færi mjög vel og fórum í fínar skyndisóknir og nýttum hraðann okkar. Seinni hálfleikur var töluvert betri en sá fyrri hvað pressu varðar því okkur gekk mjög illa að pressa í fyrri hálfleik og þurftum því að hlaupa mikið til baka löng hlaup. Mér fannst menn vera þreyttir. Við náðum að laga það í hálfleik og seinni hálfleikur var mjög góður."
En var uppleggið að leyfa Breiðablik að hafa boltann og beita skyndisóknum?
„Nei alls ekki. Við viljum aldrei leyfa Breiðablik að hafa boltann. Við viljum alltaf pressa hátt ef við getum en þeir eru orðnir mjög sjóaðir í þessu hvernig þeir spila út úr pressunni og finna altlaf leiðir. Þeir eru ótrúlega flinkir að spila sig út og við ekki upp á okkar besta í pressunni þegar við förum í hana."
Rúnar sagði að Kristján Flóki Finnbogason væri meiddur og Kenny Chophart veikur heima hjá sér. Aron Kristófer Lárusson og Stefán Árni Geirsson spiluðu smá hluta í kvöld eftir að hafa misst mikið úr.
Nánar er rætt við Rúnar í spilaranum að ofan. Hann er spurður út í ummæli um að KR sé aðeins á eftir þremur efstu liðunum en í dag unnu þeir þriðja efsta liðið.
„Ég er ekki búinn að skipta um skoðun. Við getum unnið öll þessi lið og vitum það. En heild yfir og það sérst á stigatöflunni þá eru þessi lið jafnari en við," sagði Rúnar sem sagði að KR þurfi að bæta hressilega í til að efla leikmannahópinn sinn til að komast í baráttuna bæði með reynslu og gæðum.
„Okkur vantar bara fleiri leikmenn, við þurfum að leggja meiri pening í þetta og ég þarf að finna einhverja kalla sem eru tilbúnir að borga fyrir okkur," sagði hann og hló. „Það er enginn að koma eins og staðan er í dag en við erum að skoða og leita sagði hann."






















