Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   mán 07. janúar 2019 14:45
Arnar Helgi Magnússon
Shelvey á leið til Barcelona - Hittir sérfræðing
Mynd: Getty Images
Jonjo Shelvey, leikmaður Newcastle er nú á leiðinni til Barcelona þar sem að hann mun hitta sérfræðing varðandi meiðsli.

Shelvey hefur verið að glíma við meiðsli í læri nánast allt tímabilið og hefur einungis komið við sögu í ellefu leikjum á leiktíðinni.

Shelvey kom sér í fréttirnar þegar Newcastle mætti Manchester United á dögunum en hann fór ansi harkalega í Paul Pogba en slapp þó við rautt spjald.

Það hefur lítið gengið upp hjá Newcastle á leiktíðinni en liðið hefur ekki unnið í síðustu fimm leikjum.

Benitez vonast eflaust eftir því að Shelvey fái úrlausn meiðslavandamála sinna og geti byrjað að leika með liðinu af fullum krafti.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner