Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   mán 10. júní 2013 22:44
Elvar Geir Magnússon
Zoran Ljubicic: Mjög svekktur út í Magnús
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflavíkur, segir að Gunnar Jarl Jónsson dómari hafi gert rétt í því að reka Magnús Þóri Matthíasson af velli í kvöld. Staðan var markalaus þegar Magnús Þórir hrinti varnarmanni Fram þegar boltinn var ekki í leik.

Rauða spjaldið breytti leiknum, Fram komst yfir strax eftir það og vann á endanum 2-1 sigur.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  2 Fram

„Þetta er mjög svekkjandi. Það var eitt lið á vellinum þegar rauða spjaldið kom. Við klúðruðum mörgum dauðafærum. Svo gerðist þetta atvik sem ég er ósáttur með. Heimskulegt atvik og það var rétt hjá dómaranum að gefa honum rautt spjald," sagði Zoran.

„Eftir það var þetta mjög erfitt. Ég er mjög svekktur út í Magnús. Leikmaður á þessum aldri og hefur spilað þetta marga leiki á alls ekki að gera þetta."

Þetta var þriðja rauða spjaldið sem Keflavík fær á sig í deildinni í sex leikjum. Er spjaldasöfnun áhyggjuefni?

„Ég veit ekki hvað skal segja. Mér fannst við stundum fá of ódýr spjöld í kvöld. Ég veit ekki hvað er að gerast."

Keflavík er með fjögur stig, tveimur stigum frá fallsæti. „Deildin er orðin tvískipt. Við vorum að draga okkur neðar með þessu tapi í dag. Ég lagði þetta upp sem lykilleikmann upp á framhaldið. Menn voru að leggja sig fram en heimskulegt rautt spjald kostaði okkur þrjú stig í dag," sagði Zoran.

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner