Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. apríl 2021 21:56
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Leverkusen tapaði mikilvægum stigum
Mynd: Getty Images
Hoffenheim 0 - 0 Bayer

Bayer Leverkusen tapaði mikilvægum stigum í baráttu um Meistaradeildarsæti er liðið gerði markalaust jafntefli við Hoffenheim í þýsku deildinni í kvöld.

Vörn Hoffenheim náði að halda sóknarmönnum Leverkusen í skefjum. Hoffenheim fékk ekkert færi í leiknum á meðan Leverkusen átti aðeins eitt skot á rammann.

Þessi úrslit eru mikil vonbrigði fyrir Leverkusen sem er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið er í 6. sæti með 44 stig, nú níu stigum á eftir Frankfurt sem er í 4. sæti þegar sex leikir eru eftir af deildinni.

Hoffenheim er í 12. sæti með 31 stig, fimm stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner