Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. júní 2021 10:00
Elvar Geir Magnússon
Líklegt byrjunarlið Englands - Sterling í liðinu
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: Getty Images
England hefur leik á EM alls staðar á morgun klukkan 13 þegar Króatía heimsækir Wembley. Mirror segir að Gareth Southgate landsliðsþjálfari muni halda trausti við Raheem Sterling og láti hann byrja í leiknum.

Reiknað er með því að England spili með fjögurra manna varnarlínu og Sterling verði einn af fremstu þremur.

Þrátt fyrir að City vann Englandsmeistaratitilinn þá stóð Sterling ekki undir væntingum á tímabilinu.

Þá er talið að Tyrone Mings verði við hlið John Stones í hjarta varnarinnar en Harry Maguire er ekki orðinn leikfær eftir að hafa meiðst á ökkla.

Mings og Stones hafa aldrei spilað saman áður en Southgate var ánægður með frammistöðu Mings í vináttulandsleikjum gegn Austurríki og Rúmeníu.

Líklegt byrjunarlið Englands:
Pickford (m)
Walker, Stones, Mings, Chilwell
Rice, Phillips, Mount
Foden, Sterling, Kane
Athugasemdir
banner
banner