Arabísku stórliðin töpuðu í kvöld
Það fóru þrír leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu fyrr í kvöld þar sem stærstu liðin sem mættu til leiks töpuðu öll.
Titilbaráttulið Al-Ahli komst í tveggja marka forystu á útivelli gegn sterku liði Al-Qadsiah en tapaði leiknum í uppbótartíma seinni hálfleiks.
Ivan Toney skoraði fyrsta mark leiksins áður en Frakkinn efnilegi Valentin Atangana tvöfaldaði forystuna eftir undirbúning frá Galeno, svo staðan var 0-2 í leikhlé.
Það voru margar stjörnur úr fótboltaheiminum sem mættust í þessari viðureign en þó komst enginn stjörnuleikmaður heimamanna á blað í endurkomusigrinum mikla. Það voru þrír heimamenn frá Sádi-Arabíu sem skoruðu mörkin á meðan Mateo Retegui, Nacho Fernández, Julian Weigl og Nahitan Nández hjálpuðu til með sínu framlagi ásamt Julian Quinones sem er í harðri baráttu við Toney um markakóngstitilinn.
Franck Kessié, Riyad Mahrez og Édouard Mendy voru meðal byrjunarliðsmanna í liði Al-Ahli en Enzo Millot var geymdur á bekknum þar sem hann er að glíma við óþægindi.
Al-Ahli er áfram í öðru sæti eftir þetta tap, tveimur stigum á eftir toppliði Al-Nassr sem á leik til góða. Al-Qadsiah er í fjórða sæti, aðeins tveimur stigum á eftir Al-Ahli.
Ríkjandi meistarar Al-Ittihad leiddu eftir fyrri hálfleikinn á útivelli gegn Al-Riyadh en töpuðu í seinni hálfleik. Youssef En-Nesyri skoraði eina markið í fyrri hálfleiknum en liðsfélagar hans Houssem Aouar, Steven Bergwijn, Moussa Diaby og Fabinho náðu ekki að bæta marki við.
Þess í stað svöruðu heimamenn í Al-Riyadh með þremur mörkum í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 3-1. Al-Ittihad siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar en þetta er gríðarlega mikilvægur sigur fyrir fallbaráttuvonir Al-Riyadh sem er í fallsæti. Al-Riyadh er þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar átta umferðir eru eftir.
Að lokum töpuðu Georginio Wijnaldum og félagar í liði Al-Ettifaq útileik gegn Chris Smalling og liðsfélögum hans í Al-Fayha.
Alfa Semedo, fyrrum leikmaður Nottingham Forest og Reading, skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik og gerðu heimamenn í liði Al-Fayha mjög vel í því að drepa hraðann niður í síðari hálfleik.
Bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild. Al-Ettifaq er með sex stigum meira þrátt fyrir hörmulegt gengi síðustu vikna.
Al-Qadsiah 3 - 2 Al-Ahli
0-1 Ivan Toney ('27)
0-2 Valentin Atangana ('42)
1-2 Musab Al-Juwayr ('63)
2-2 Turki Al-Ammar ('92)
3-2 Ibrahim Mahnashi ('98)
Al-Riyadh 3 - 1 Al-Ittihad
0-1 Youssef En-Nesyri ('4)
1-1 Leandro Antunes ('48)
2-1 Toze ('80)
2-1 Mamadou Sylla, misnotað víti ('94)
3-1 Mamadou Sylla ('94)
Al-Fayha 1 - 0 Al-Ettifaq
1-0 Alfa Semedo ('21)
Athugasemdir

