Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   mið 11. mars 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
Kvenaboltinn
Alli Jói.
Alli Jói.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Úr leiknum í gær.
Úr leiknum í gær.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
„Þetta var örugglega bráðskemmtilegur leikur að horfa á, sérstaklega fyrri hálfleikurinn. Þetta var endana á milli," sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, eftir 4-2 sigur á FH í Lengjubikarnum í gær.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

Erin Flurey skoraði fyrstu þrjú mörk Þórs/KA í leiknum. Þetta var fyrsti leikur bandaríska framherjans fyrir liðið. Alli Jói var spurður út í hana.

„Það er mjög svo ánægjulegt, hún er tiltölulega nýkomin til landsins. Þetta er það sem okkur hefur vantað á undirbúningstímabilinu, einhvern sem getur sett endahnútinn á það sem við erum að gera. Hún gerði það vissulega í dag og byrjunin lofandi."

„Ég er ánægður með liðið, mér finnst hópurinn góður og við stefnum hátt. Auðvitað eru sex vikur í mót og þetta var síðasti mótsleikurinn okkar. Það er hellingsvinna framundan, en ég er bjartsýnn og ánægður með liðið mitt,"
segir Alli Jói sem væri til í að eiga fleiri keppnisleiki eftir fram að Íslandsmóti.

Hann segir ekki á planinu að taka inn fleiri leikmenn fyrir mót.

Það helsta úr leiknum, sem sýndur var á Livey, má sjá í spilaranum hér að neðan.


Komnar
Arna Sif Ásgrímsdóttir frá Val
Halla Bríet Kristjánsdóttir frá Völsungi
Elísa Bríet Björnsdóttir frá Tindastóli
Birgitta Rún Finnbogadóttir frá Tindastóli
María Dögg Jóhannesdóttir frá Tindastóli
Erin Flurey frá Bandaríkjunum
Allie Augur frá Bandaríkjunum

Farnar
Sandra María Jessen til Köln
Sonja Björg Sigurðardóttir í Val
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í Val
Ellie Moreno
Jessica Berlin
Henríetta Ágústsdóttir í HK (var á láni frá Stjörnunni)
Eva Rut Ásþórsdóttir í Fylki
Krista Dís Kristinsdóttir í Fram
Slapp
banner
banner
banner