David Jonathan Panka kom til Íslands fyrr í vetur og æfði með liðum í Lengjudeildinni, æfði bæði með Ægi og Leikni. Hann birti myndband á Instagram þar sem hann sagði frá för sinni til Íslands og aðstæðum.
David er 26 ára Hollendingur sem hefur verið á mála hjá Mledz Legnica í Póllandi og varaliðum Sporting Kansas, Panathinaikos, Hertu Berlin og Werder Bremen. Hann á að baki leiki í næstefstu deild Póllands og spilaði síðast í utandeild í Þýskalandi.
Í myndbandinu segir hann að hann sé í leit að nýju félagi, og því rétta fyrir sig. Hann segir að félagið, sem er Ægir, hafi viljað fá að skoða hann í tvo daga. Hann talar um að landið sé fallegt en hann var ekki hrifinn af fagmennskunni í kringum æfingarnar.
Hann segist hafa horft á leik Ægis og Keflavík í Lengjubikarnum sem endaði með 3-1 sigri Keflavíkur. Hann var ekki hrifinn og sagði að leikurinn hefði getað endað 30-0 fyrir Keflavík.
„Þegar þú ert á reynslu þá held ég að það sé alltaf kurteisi að gera alltaf þitt besta, sama hvort þú viljir spila þar eða ekki. Jafnvel þó að leikmennirnir væru mjög fínir þá var þetta ekki fyrir mig, þetta var of mikil áhugamennska. Og umhverfið, að mæta fimm mínútum fyrir æfingu, það er eitthvað sem þú gerir sem krakki, ekki sem áhugamaður. Eftir að hafa tekið tvær æfingar þá átti ég spjall við þjálfarann og hann sagist ekki vilja fá mig því ég hefði ekki sýnt að ég virkilega vildi ná árangri - að ég hefði alls ekki tekið reynslunni nægilega alvarlega, ekki lagt nógu mikið á mig. Ég meinti það ekki þannig, en það var hægt að sjá á mér að ég vildi ekki spila þarna," segir David sem vill spila einhvers staðar þar sem honum líður eins og atvinnumanni.
Myndbandið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir