Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   mið 11. mars 2026 14:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Kvenaboltinn
Guðni Eiríks
Guðni Eiríks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og Mjólkurbikarsins í fyrra.
FH endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og Mjólkurbikarsins í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aldís er mætt aftur á völlinn.
Aldís er mætt aftur á völlinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var fullt af hlutum sem maður tekur út úr þessum leik. Fyrri hálfleikurinn dapur en seinni hálfleikurinn mun skárri. Maður er ekki að horfa í úrslit, heldur frammistöðu og mikilvægt að allir leikmenn FH fái tækifæri til að sýna sig og blómstra. Svo sjáum við hvaða leikmenn spila (þegar fyrsti leikur í móti hefst)," sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, við Fótbolta.net eftir 4-2 tap gegn Þór/KA í Boganum í gær.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum neðst.

FH var ekki með sitt sterkasta lið í gær, einhverjir leikmenn eru ekki komnir til landsins og aðrir voru eða eru í landsliðsverkefnum.

FH seldi þrjá leikmenn út í atvinnumennsku seinni hluta síðasta árs og Guðni var spurður hvort þyrfti að styrkja hópinn. Einungis er búið að tilkynna um komu tveggja nýrra leikmanna.

„Ég get sagt það að það er töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag. Við látum síðan klúbbinn kynna þá leikmenn sem mæta til leiks. Það eru nokkur nöfn sem eru ekki mætt, það eru m.a. erlendir leikmenn. Við erum búin að klára þann hóp sem mætir til leiks, það er þónokkuð síðan," sagði Guðni og ítrekaði að það væri engin leikmannaleit í gangi.

„Það er rosalega þægilegt að vera búinn að þessu, gott að við kláruðum þetta allt saman snemma í febrúar. Svo hafa nöfn bæst við síðan þá. Við mætum með flott lið til leiks þegar mótið fer af stað," sagði Guðni og hrósaði ungum leikmönnum fyrir að hafa gripið tækifærið til þessa í vetur.

Aldís Guðlaugsdóttir spilaði fyrri hálfleikinn í marki FH en hún er að snúa til baka eftir meiðsli.

„Það er gaman að segja frá því hvað hún er að standa sig vel í sinni endurkomu - ótrúlegt að hún sé komin á þennan stað. Hún verður klár þegar mótið fer af stað sem er jákvætt."

FH heimsækir Þór/KA í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna sem hefst eftir rúmlega sex vikur.

Það helsta úr leiknum, sem sýndur var á Livey, má sjá í spilaranum hér að neðan.


Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum

Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)
Slapp
banner
banner