Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 18:14
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Úrvalsdeildarslagur í undanúrslitum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Undanúrslit Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar hefjast í kvöld og hafa byrjunarliðin verið kynnt til sögunnar.

Það eru afar spennandi slagir á dagskrá og þar á meðal er einn úrvalsdeildarslagur þegar Nottingham Forest tekur á móti Aston Villa í Evrópudeildinni.

Vítor Pereira og Unai Emery þjálfarar mæta til leiks með sín sterkustu byrjunarlið þar sem bæði lið eru komin í góða stöðu í ensku úrvalsdeildinni og geta því hvílt lykilmenn um helgina. Forest er fimm stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir á meðan Villa er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Emery gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu sem tapaði gegn Fulham um síðustu helgi þar sem Amadou Onana kemur inn fyrir Lamare Bogarde.

Pereira gerir hins vegar þrjár breytingar frá stórsigri Forest um helgina þar sem Stefan Ortega, Morato og Nicolás Domínguez koma inn fyrir Matz Sels, Jair Cunha og Ibrahim Sangaré. Cunha og Sangaré bætast við langan meiðslalista Forest sem neyðist til að fylla bekkinn með táningum úr unglingaliðinu.

Það er annað enskt lið sem mætir til leiks í kvöld þegar Crystal Palace heimsækir úkraínska stórveldið Shakhtar Donetsk til Póllands í Sambandsdeildinni.

Palace er ennþá með í evrópubaráttu ensku úrvalsdeildarinnar en ætlar að leggja mikið púður í að vinna Sambandsdeildina. Oliver Glasner þjálfari gerir eina breytingu frá tapi gegn Liverpool um helgina þar sem Yeremy Pino byrjar á kantinum í stað Brennan Johnson sem sest á bekkinn.

Shakhtar mætir til leiks með sjö brasilíska leikmenn í byrjunarliðinu sínu og fjóra frá Úkraínu. Þá eru fimm Brassar og aðeins þrír Úkraínumenn á varamannabekknum. Artem Bondarenko, Marlon, Newerton og Lassina Traoré eru meðal varamanna í sterku liði heimamanna.

Að lokum mætast Braga og Freiburg í Evrópudeildinni á meðan Rayo Vallecano spilar við Strasbourg í Sambandsdeildinni.

Þar má finna ýmsa fyrrum úrvalsdeildarleikmenn á borð við Ben Chilwell, Andrew Omobamidele, Julio Enciso og Joao Moutinho í byrjunarliðunum.

Nott. Forest: Ortega, Williams, Morato, Milenkovic, Aina, Dominguez, Anderson, Gibbs-White, Hutchinson, Wood, Jesus.
Varamenn: Sels, Willows, Lucca, Yates, McAtee, Bakwa, Abbott, Whitehall, Sinclair, Hanks, Blake.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Tielemans, Onana, McGinn, Buendia, Rogers, Watkins.
Varamenn: Bizot, Wright, Bogarde, Maatsen, Lindeloh, Mings, Garcia, Luiz, Bailey, Elliott, Sancho, Abraham.



Shakhtar Donetsk: Riznyk, Tobias, Bondar, Matvilenko, Henrique, Ocheretko, Gomes, Pedrinho, Alisson, Eguinaldo, Elias.
Varamenn: Azarovi, Bondarenko, Ghram, Silva, Meirelles, Ferreira, Marlon, Nazaryna, Newerton, Obah, Traore, Tvardovskyi.

Crystal Palace: Henderson, Richards, Lacroix, Canvot, Munoz, Wharton, Kamada, Mitchell, Sarr, Pino, Mateta.
Varamenn: Benitez, Matthews, Riad, Clyne, Cardines, Sosa, Hughes, Devenny, Lerma, Johnson, Strand Larsen.



Braga: Hornicek, Gomez, Carvalho, Oliveira, Lagerbielke, Tiknaz, Gorby, Moutinho, Zalazar, Horta, Victor

Freiburg: Atubolu, Treu, Ginter, Lienhart, Makengo, Eggestein, Manzambi, Suzuki, Beste, Grifo, Matanovic



Rayo Vallecano: Batalla, Ratiu, Lejeune, Ciss, Chavarria, Lopez, Valentin, Palazon, Akhomach, De Frutos, Alemao.

Strasbourg: Penders, Ouattara, Omobamidele, Högsberg, Chilwell, Doukoure, El Mourabet, Enciso, Moreira, Godo, Emegha
Slapp
banner
banner