Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
   sun 16. júlí 2023 17:41
Þorsteinn Haukur Harðarson
Dean Martin: Færð það í andlitið að klára ekki færin
Lengjudeildin
Dean Martin
Dean Martin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

"Þegar þú klárar ekki fullt af færum færðu það í andlitið. Það gerðist í dag," sagði Dean Martin, þjálfari Selfyssinga, eftir 4-2 tap gegn Leikni í dag. 


Lestu um leikinn: Selfoss 2 -  4 Leiknir R.

"Með boltann fannst mér þetta einn besti leikur sem við höfum spilað í sumar. Við sköpuðum fullt af góðum færum. Varnarlega vorum við líka fínir þangað til Leiknismenn jöfnuðu. Það var margt mjög jákvætt við leikinn en það er ekkert jákvætt við að tapa 4-2."

Liðið hefur nú tapað 4 leikjum í röð. Hvað er til ráða? "Ef ég vissi það væri ég milljónamæringur. Við þurfum að halda áfram. Við erum ungt lið og þurfum að læra af mistökunum. Við mætum bara á æfingu á morgun og byrjum að hugsa um næsta leik."

Þá reiknar Dean ekki með því að fá inn leikmenn í glugganum.

"Nei bara halda áfram að þróa þetta lið. Eins og staðan er núna bætum við engu við. Okkar markmið er að spila með eins marga Selfyssinga og hægt er. Ef við bætum aðkomumanni við er það á kostnað Selfyssings."


Þorsteinn Aron Antonsson var ekki með í dag en hann meiddist á EM U-19. Þá er lánssamningur hans við Selfyssinga útrunninn en líkur eru á að hann klári samt tímabilið með Selfossi. "Við vonum það. Hann kom meiddur úr landsliðsverkefni sem er ömurlegt, bæði fyrir okkur og hann."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
Athugasemdir
banner