„Við spiluðum nógu góðan fótbolta til að vinna þennan leik, við bara nýttum ekki færin okkar. Við vorum að opna þá og súrt að ná ekki að nýtta þetta," sagði Jón Dagur Þorsteinsson eftir tap gegn Slóvakíu í dag.
Íslenska liðið átti glimrandi fínan fyrri hálfleik í leiknum og hefði getað skorað nokkur mörk. Hálfleiksstaðan var 1-1.
Íslenska liðið átti glimrandi fínan fyrri hálfleik í leiknum og hefði getað skorað nokkur mörk. Hálfleiksstaðan var 1-1.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 2 Slóvakía
„Þetta var ekki að detta, við héldum samt áfram að berja á þeim. Við náðum bara ekki að setja boltann nógu oft yfir línuna."
„Við svöruðum þeirra marki í fyrri hálfleik frekar hratt, komum okkur strax inn í leikinn áttum bara að vera búnir að skora fleiri í hálfleik."
„Við vorum sáttir með spilamennskuna í fyrri hálfleik, fengum auðvitað þetta mark á okkur en heilt yfir var þetta flott í fyrri hálfleik. Náðum ekki að opna þá jafnoft í seinni hálfleik en mjög súrt að tapa."
Jón Dagur var að spila sinn fyrsta leik í tæpa tvo mánuði. „Mér leið mjög vel, kannski dró aðeins úr mér - eða okkur öllum - í seinni hálfleik, vorum ekki að ná að komast í sömu stöður en mér leið vel."
Jón Dagur var með einhverjar handahreyfingar rétt áður en hann fór af velli, eitthvað að spyrja út í skiptinguna sem var í vændum. „Ég bað reyndar ekki um skiptingu. Er ekkert að pæla í skiptingunni, bara súrt að ná ekki að klára þetta. Við komum hérna til að sækja þrjá punkta og við náðum því ekki," sagði Jón Dagur.
Athugasemdir























