Koné fer til Manchester - Zirkzee fær loforð frá Roma - Chelsea og Villa skoða Santi Castro - John Terry til Oxford? - Aké eftirsóttur
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
   sun 19. ágúst 2018 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Helgi Sig: Fylkir á ekki að sætta sig við annað en þrjú stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Í lok leiks eru kannski bæði lið ósátt við eitt stig," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, eftir jafntefli gegn FH fyrr í kvöld.

FH var betri aðilinn í fyrri hálfleik og leiddi 1-0 en heimamenn jöfnuðu snemma í galopnum síðari hálfleik þar sem liðin skiptust á að sækja endanna á milli.

„Við vorum að fá fullt af færum og hálffærum í seinni hálfleik. Með smá klókindaskap hefðum við getað klárað þennan leik."

Helgi var stoltur af sínum mönnum og telur sjálfstraust vera aðalatriðið bakvið góða frammistöðu gegn sterku liði eins og FH. Hann hefur mikla trú á leikmannahópi sínum og vill að Fylkismenn byrji að hugsa stórt.

„Við erum með frábært lið. Fylkir á ekki að sætta sig við annað en þrjú stig í hverjum einasta leik. Við þurfum að fara að hugsa þannig, hugsa stórt.

„Síðustu leikir hafa verið mjög góðir eftir þessar markasúpur sem við fengum á okkur gegn KA og KR. Ef strákarnir spila eins og þeir gerðu í dag og í síðustu leikjum þá fara þeir upp töfluna, það er engin spurning."

Athugasemdir
banner