Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 20. febrúar 2019 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Van Persie heilsaði upp á alla krakkana
Mynd: Nordic Photos
Hollenski framherjinn Robin van Persie var í miklu stuði fyrir leik Feyenoord og Groningen á dögunum.

Van Persie gerði það gott með Arsenal og Manchester United, en hann er orðinn 35 ára gamall og er að klára ferilinn í Hollandi með Feyenoord.

Fyrir leikinn gegn Groningnen náðist myndband af honum í göngunum þar sem hann sést fara á milli allra þeirra krakka sem voru að fara að leiða leikmennina inn á.

Hann gekk á milli þeirra og gaf þeim fimmu og sum þeirra fengu jafnvel faðmlag frá þessu mikla markaskorara.

Myndbandið sem hefur fengið mikla athygli má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner