„Gríðarlega svekkjandi að tapa þessum leik í dag en á sama tíma bara credit á Fram-liðið sem að mættu í þennan leik eins og grenjandi ljón.” Þetta sagði Guðni Þór þjálfari HK eftir leikinn í kvöld.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 1 HK
„Það sem fór úrskeiðis er kannski bara það að Fram nýtir sín færi en við nýtum ekki okkar færi. Við fáum tvo mjög góða sénsa á móti öflugum markmanni Frammara, henni Elainu og hún ver glæsilega í bæði skiptin.”
„Við mættum með ákveðinn kraft í seinni hálfleik og mér fannst það ganga vel og við jöfnum en svo er blaut tuska í andlitið að fá bara 2-1 beint í kjölfarið og það svolítið gerði útslagið.”
HK jafnaði leikinn í seinni hálfleik en voru svo aftur lentar undir aðeins nokkrum mínútum seinna. „Við skorum mark og þá lifnaði yfir öllu og við fáum trú og svo bara hrikalega svekkjandi að fá mark beint í kjölfarið og það einhvern veginn hálfpartinn rotar okkur í dag.”
„Við erum með virkilega öflugt lið, við erum með hrikalega sterkan hóp. Við erum hins vegar að þétta okkur saman fyrir lokaátökin”
Viðtalið er í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir






















