Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. mars 2019 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sane ekki alvarlega meiddur
Mynd: Getty Images
Leroy Sane var tæklaður illa af Milan Pavkov í vináttulandsleik Þýskalands og Búlgaríu í gær.

Myndband og meira um tæklinguna má sjá hér.

Á mánudaginn drógu John Stones og Fabian Delph sig úr landsliðshópi Englengdinga. Stones, Delph og Sane eru allir leikmenn Manchester City.

Leroy Sane setti færslu inn á Twitter reikning sinn í dag þar sem hann þakkaði fyrir kveðjurnar sem hann hefur fengið og segir aðdáendum sínum að hafa engar áhyggjur, sér líði vel.

Þetta landsleikjahlé er því ekki algjör martröð fyrir Pep Guardiola þjálfara Manchester City en framundan eru leikir gegn Fulham og Tottenham í deildinni.

Athugasemdir
banner
banner
banner