Nuno Espirito Santo, stjóri Nottingham Forest, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Samningurinn er í gildi til ársins 2028.
Þessi 51 árs gamli Portúgali náði stórkostlegum árangri með liðið á síðustu leiktíð. Liðið hafnaði í 7. sæti úrvalsdeildarinnar og spilar í Evrópukeppni í fyrsta sinn frá tímabilinu 1995-96.
Það var útlit fyrir að liðið myndi spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en liðið lenti í vandræðum undir lokin og tapaði fimm af síðustu átta leikjum sínum.
Það hefur ekki komið í veg fyrir að Evangelos Marinakis, eigandi félagsins, verðlaunai Nuno eftir að liðið náði sínum besta árangri í 30 ár, liðið komst einnig í undanúrslit enska bikarsins þar sem liðið tapaði gegn Man City.
„Ég er í skýjunum að geta haldið áfram á þessu ferðalagi hjá þessu stórkostlega félagi. Síðan ég kom til Forest höfum við lagt rosalega mikið á okkur til að búa til tengingu á milli leikmanna og stuðningsmanna og allra hjá félaginu sem hefur hjálpað okkur að ná frábærum árangri á síðustu leiktíð," sagði Espirito Santo.
„Nú er tími til að leggja enn meira á sig þar sem við stefnum að því að skapa fleiri sérstakar minningar saman."
Athugasemdir