„Ég er mjög ánægður með sigurinn fyrst og fremst. Fyrri hálfleikur var mjög vel spilaður að okkar hálfu þegar við vorum búnir að átta okkur á hvað Stjarnan væri að gera." sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir sigurinn á Stjörnunni í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Stjarnan
„Þeir pressuðu okkur hátt og það tók smá tíma að átta okkur á hlutunum og líka bara hvernig þeir byggðu upp sitt uppspil og það var gríðarlega klógt hjá þjálfarateymi Stjörnunnar hvernig þeir lögðu upp leikinn og það tók okkur smá tíma að átta okkur á því."
„Fyrri hálfleikurinn var virkilega vel spilaður og seinni hálfleikurinn, þú vilt alltaf vera frekur og skora fleiri mörk en kannski eftir landsleikjapásuna, menn vilja halda fengnum hlut og Ingvar þurfti að taka á stóra sínum í einhver skipti. Það mætti orða þetta kannski bara svona, fyrri hálfleikur mjög góður og seinni hálfleikur sæmilega fagmannlegur."
„Það voru nokkrar sterkar frammistöður, sumir voru farnir að þreytast. Gunnar er búin að eiga erfiða landsleikjaviku og það sást alveg á honum í seinni hálfleik og bara sterkar frammistöður frá mörgum í kvöld. Misstum aðeins taktinn eftir að Logi fór útaf í hálfleik því fyrri hálfleikur fannst mér virkilega vel spilaður þannig þá komu öðruvísi áherslur og svo fengum við fínar mínútum frá varamönnum okkar. Stundum eftir svona langa pásu þá dettur stundum takturinn úr leik liðsins en mér fannst við gera þetta virkilega vel."
Viðtalið við Arnar má sjá heild sinni má í sjónvarpinu hér að ofan.






















