Það fóru tveir leikir fram í lokaumferð riðlakeppni HM félagsliða í nótt þegar Chelsea tryggði sig áfram í útsláttarkeppnina.
Chelsea spilaði við Esperance frá Túnis og var leikurinn afar tíðindalítill þar til Chelsea tókst að brjóta varnarmúr Esperance í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Enzo Fernández lagði upp fyrstu tvö mörk leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Það fyrra úr aukaspyrnu sem Tosin Adarabioyo skallaði í netið og það seinna með snyrtilegri sendingu á Liam Delap sem gerði vel að leika á varnarmenn Esperance og klára með marki.
Hægt er að setja stórt spurningarmerki við Bechir Ben Said markvörð Esperance sem stóð kyrr í báðum mörkunum án þess að skutla sér, þó hann hefði líklegast átt að verja báðar marktilraunirnar.
Það var afar lítið að frétta í síðari hálfleik og urðu lokatölur 0-3 eftir að Tyrique George gulltryggði auðveldan sigur Chelsea seint í uppbótartíma, á 97. mínútu.
Chelsea endar því í öðru sæti riðilsins með 6 stig og mætir Benfica í 16-liða úrslitum mótsins.
Flamengo endar í toppsætinu og mætir FC Bayern í 16-liða úrslitum.
Flamengo gerði 1-1 jafntefli við Los Angeles FC þar sem staðan var markalaus allt þar til á lokakaflanum þegar Denis Bouanga tók forystuna fyrir Los Angeles gegn gangi leiksins.
Bouanga skoraði á 84. mínútu eftir að Flamengo hafði verið sterkari aðilinn allan leikinn og jafnaði Wallace Yan metin skömmu síðar. Staðan var því orðin 1-1 og komust Brasilíumennirnir í liði Flamengo nálægt því að gera sigurmark en boltinn endaði rétt framhjá.
Lokatölur urðu því 1-1 og endar Flamengo með 7 stig, eftir að hafa sigrað gegn Chelsea fyrir helgi.
Los Angeles endar á botni riðilsins með 1 stig. Esperance endar með 3 stig.
Esperance 0 - 3 Chelsea
0-1 Liam Delap ('45 )
0-2 Tosin Adarabioyo ('45 )
0-3 Tyrique George ('90 )
Los Angeles FC 1 - 1 Flamengo
1-0 Denis Bouanga ('84 )
1-1 Wallace Yan ('86 )
Athugasemdir