Seinni leikur Salernitana og Sampdoria í umspili ítölsku B-deildarinnar var stöðvaður á 65. mínútu þar sem stuðningsmenn Salernitana köstuðu reyksprengjum, sætum og ýmsu lauslegu inn á völlinn.
Sampdoria var þá 2-0 yfir í leiknum og samtals yfir í einvíginu 2-0.
Ítalskir fjölmiðlar segja að Sampdoria verði að öllum líkindum dæmt 3-0 sigur í seinni leiknum og nær því að forðast fall í C-deildina á magnaðan hátt.

Sampdoria var fallið en fjögurra stiga frádráttur Brescia vegna fjárhagsstöðu þýddi að Brescia féll sjálfkrafa í stað Sampdoria, sem síðan kom í stað Frosinone í umspilinu.
Það var mikið áfall fyrir stuðningsmenn Sampdoria þegar liðið féll niður í ítölsku C-deildina í fyrsta skipti í 78 ára sögu sinni. En þessar óvæntu vendingar gerðu að verkum að liðið náði á endanum að hanga uppi í B-deildinni.
Það hefur gengið erfiðlega hjá gamla stórveldinu Sampdoria síðustu tímabil. Fjórir mismunandi þjálfarar stýrðu liðinu á þessu tímabili.
Athugasemdir