Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarni hugsað um gluggann í langan tíma - Búið að bjóða Jóni Daða samning
Lengjudeildin
Bjarni Jó.
Bjarni Jó.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði í leik með Selfossi.
Jón Daði í leik með Selfossi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugginn, sumarglugginn á Íslandi, opnar 17. júlí og verður opinn í tær vikur.

Það eru því rúmar þrjár vikur í að glugginn opni, en Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss er löngu farinn að huga að glugganum og liðsstyrk.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  0 Selfoss

„Vonandi náum við núna að endurheimta menn úr meiðslum og sjálfsagt styrkjum við okkur í glugganum," sagði þjálfarinn við Fótbolta.net í gær. Sænski miðvörðurinn Alexander Berntsson og spænski framherjinn Raul Tanque eru að glíma við meiðsli og Daði Kolviður Einarsson sömuleiðis.

„Vonandi náum við að þétta raðirnar núna mjög fljótlega."

Þú talar um glugann, ertu byrjaður að hugsa um hann?

„Já, búinn að hugsa um hann lengi. Það er alveg ljóst að við, í þessari stöðu, verðum að styrkja okkur örlítið, og rétt. Það er aðalatriðið." Selfoss er í botnsæti Lengjudeildarinnar eftir níu umferðir, en það er þó stutt upp úr fallsæti.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Selfoss boðið Jóni Daða Böðvarssyni samning. Jón Daði er uppalinn hjá félaginu og lék síðast fyrir það árið 2012 áður en hann hélt út í atvinnumennsku þar sem hann hefur verið síðan. Framherjinn er á heimleið eftir vel lukkaða dvöl hjá Burton Albion seinni hluta vetrar. Samkvæmt heimildum hafa Fram og KR einnig áhuga og hann hefur líka verið orðaður við Víking.
„Mjög sérstakt að öll orka hafi farið í að kenna Ívari hvernig á að spila í Boganum"
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 9 5 4 0 12 - 4 +8 19
2.    Njarðvík 9 4 5 0 21 - 9 +12 17
3.    HK 9 5 2 2 17 - 9 +8 17
4.    Þór 9 4 2 3 20 - 17 +3 14
5.    Þróttur R. 9 4 2 3 16 - 15 +1 14
6.    Völsungur 9 4 1 4 15 - 19 -4 13
7.    Keflavík 8 3 3 2 15 - 9 +6 12
8.    Grindavík 8 3 2 3 22 - 19 +3 11
9.    Leiknir R. 9 2 2 5 10 - 22 -12 8
10.    Fylkir 9 1 4 4 10 - 14 -4 7
11.    Fjölnir 9 1 3 5 11 - 19 -8 6
12.    Selfoss 9 2 0 7 6 - 19 -13 6
Athugasemdir
banner