Jude Bellingham hefur verið að berjast við meiðsli á öxl undanfarið en hann hefur þurft að spila með spelku vegna meiðslanna.
Hann sagði frá því eftir sigur Real gegn Pachuca á HM félagsliða í gær að hann væri orðinn þreyttur á spelkunni og biði eftir að komast í aðgerð sem fer fram strax eftir HM.
Hann sagði frá því eftir sigur Real gegn Pachuca á HM félagsliða í gær að hann væri orðinn þreyttur á spelkunni og biði eftir að komast í aðgerð sem fer fram strax eftir HM.
„Vonandi komumst við í úrslit og ég fer svo í aðgerð nokkrum dögum eftir mótið til að láta laga þetta. Ég er mjög ánægður með það, þetta er tímabært," sagði Bellingham.
„Þetta er komið á þann stað að verkurinn er ekki svo slæmur. Þetta er meira það að ég er orðinn pirraður á þessu, leikmenn að toga í spelkuna og ég þarf að laga hana í hvert einasta skipti."
Athugasemdir