Man Utd vill Kane - Arsenal hefur áhuga á Yildiz - Villa vill kaupa Sancho
   fim 25. september 2025 09:25
Kári Snorrason
Hvenær fær Lammens tækifæri hjá Man Utd?
Senne Lammens.
Senne Lammens.
Mynd: Manchester United
Senne Lammens á enn eftir að leika fyrir Manchester United eftir að hafa gengið til liðs við félagið á gluggadag í upphafi mánaðar.

Heimildir BBC herma að Lammens hafi heillað þjálfara og leikmenn með frammistöðum sínum á æfingum liðsins.

United borgaði rúmlega 18 milljónir punda fyrir þennan 23 ára belgíska markvörð sem kom frá Royal Antwerp.

Bayindir hefur staðið í marki United í upphafi tímabils og hefur fengið sinn skerf af gagnrýni.

Samkvæmt gögnum Opta er Bayindir í 16. sæti yfir markverði með meira en tvo úrvalsdeildarleiki í vetur, með aðeins 50% markvörsluhlutfall.

Manchester Utd situr í ellefta sæti deildarinnar og hefur liðið fengið á sig átta mörk eftir fimm leiki. Næsti leikur Manchester United er gegn Brentford á laugardag.
Athugasemdir
banner