Valur gerði dramatískt jafntefli við Breiðablik fyrr í kvöld á Hlíðarenda. Tryggvi Hrafn Haraldsson jafnaði metin úr vítaspyrnu þegar langt var liðið á uppbótartímann. Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals mætti í viðtal að leik loknum.
„Þetta er beggja bland. Þetta var hörkuleikur, frábær leikur á öllum sviðum fótboltans. Leikurinn sýndi hvert íslenska deildin er komin í dag. Mikil gæði og kaflaskiptur leikur. Vindurinn átti sitt að segja, Breiðablik var með yfirhöndina og meira með boltann í fyrri hálfleik og við í seinni hálfleik þegar við vorum með vindinn.“
„Eftir að hafa verið undir og ná að skora mark í uppbótartíma þá verður þú að virða stigið. Vera auðmjúkur og taka þetta stig með sér í baráttuna sem er framundan. Heilt yfir fannst ég við vera með betri marktækifæri það situr aðeins í mér, yfirleitt erum við sterkir í að nýta þessar stöður og færi.“
Valur er fjórum stigum frá toppliði Víkings nú þegar fjórar umferðir eru eftir.
„Við ætlum að berjast fram á dauða. Við ætlum að berjast fyrir öllu. Við sjáum leikin hér í kvöld, Stjarnan í gær og Víkings og Fram leikinn, þrátt fyrir að Víkingur vann leikinn þá voru þetta allt hörkuleikir og gátu farið báðum megin. Eina sem við þurfum að hafa í huga er næsti leikur, það er Fram og það verður hörkuleikur í Úlfarsárdal.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir