HK er komið áfram í Mjólkurbikarnum eftir sigur á heimavelli gegn Boltafélaginu úr Fossvogi.
Atli Hrafn Andrason skoraði eina markið í fyrri hálfleik og náði BF að halda sér í leiknum allt þar til Tumi Þorvarsson tvöfaldaði forystu heimamanna á 65. mínútu.
Brynjar Snær Pálsson og Tumi innsigluðu svo sigurinn á lokakaflanum svo lokatölur urðu 4-0. HK mætir annað hvort Víði eða Fjölni í 32-liða úrslitum bikarsins.
Á sama tíma tók Höttur á móti Neista frá Djúpavogi og komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.
Heimamenn gerðu út um viðureignina í síðari hálfleiknum og var Brynjar Felix Halldórsson atkvæðamestur þökk sé tvennu sem hann skoraði á þriggja mínútna kafla. Lokatölur 5-0 á Egilsstöðum.
Höttur tekur á móti KA í afar erfiðum slag í 32-liða úrslitum.
HK 4 - 0 BF 108
1-0 Atli Hrafn Andrason ('34 )
2-0 Tumi Þorvarsson ('65 )
3-0 Brynjar Snær Pálsson ('80 )
4-0 Tumi Þorvarsson ('83 )
Höttur 5 - 0 Neisti D.
1-0 Arnar Harri Guðmundsson ('11 )
2-0 Steinþór Hrímnir Aðalsteinsson ('28 )
3-0 Kristófer Bjarki Hafþórsson ('56 )
4-0 Brynjar Felix Halldórsson ('87 )
5-0 Brynjar Felix Halldórsson ('89 )
Athugasemdir


