Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 12:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fór með sjúkrabíl á spítala - „Hefði alveg getað gefið okkur allavega aukaspyrnu"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Már Ægisson, leikmaður Fram, þurfti að fara af velli eftir hálftíma leik gegn KA eftir að hafa fengið höfuðhögg. Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, fór upp í skallaeinvígi gegn Má og hönd KA mannsins fór í andlit Framarans sem lá óvígur eftir.

Hann fékk aðhlynningu í um tvær mínútur og var svo studdur af velli. Í hálfleik bárust þau tíðindi að hann hefði þurft að fara upp á sjúkrahús með sjúkrabíl.

„Við vitum ekki hver staðan er, hann fékk gríðarlega mikla bólgu sem spratt strax út á gagnauganu og hann var fluttur með sjúkrabíl. Maður hræðist að hann geti verið eitthvað frá, en við vonum það besta," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir leikinn í gær.

Fótbolti.net ræddi við Má í dag.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  2 KA

„Ég hef það gott núna, smávegis hausverkur og aumur í kringum eyrað, en annars bara góður. Ég datt ekki út við höggið, en vankaðist aðeins og sá ekki skýrt," segir Mási.

„Læknarnir sögðu að ég hefði fengið heilahristing og ætti að fylgja reglum FIFA varðandi heilahristinga. Ég er að fara í nánari myndatöku og fæ vonandi betri svör seinna í dag."

Ertu búinn að sjá atvikið aftur?

„Nei, ég hef ekki séð þetta, en sjúkraþjálfarinn okkar lýsti þessu aðeins fyrir mér."

Og hvað finnst þér, hver er þín upplifun, fúlt að það sé ekkert dæmt?

„Ég pældi ekkert í því þegar það gerðist, en svona eftir á að hyggja hefði dómarinn alveg getað gefið okkur allavega aukaspyrnu," segir Mási sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Fram.

Næsti leikur Fram verður gegn Val á útivelli á mánudag og er sá leikur hluti af tíundu umferðinni, síðustu umferðinni fyrir landsleikjahlé.
Athugasemdir
banner
banner