
Í kvöld fer fram mjög svo áhugaverður leikur Noregs og Íslands í Þjóðadeildinni. Leikurinn er líka mjög mikilvægur fyrir íslenska liðið.
Það er athyglisvert hvernig umræðan er í Noregi um Ödu Hegerberg, sem er eitt stærsta nafnið í norska liðinu. Hún var lengi vel langstærsta nafnið í liðinu en núna er það Caroline Graham Hansen, kantmaður Barcelona.
Það er athyglisvert hvernig umræðan er í Noregi um Ödu Hegerberg, sem er eitt stærsta nafnið í norska liðinu. Hún var lengi vel langstærsta nafnið í liðinu en núna er það Caroline Graham Hansen, kantmaður Barcelona.
Hegerberg, sem er 29 ára, er markaskorari af guðs náð en meiðsli hafa hægt á hennar ferli. Hún hefur lítið spilað fyrir Lyon að undanförnu og er ekki í stóru hlutverki þar. Hún er þrátt fyrir það fyrirliði norska landsliðsins og á að spila stórt hlutverk þar.
En Kristoffer Løkberg, sérfræðingur norska ríkisútvarpsins, veltir því fyrir sér hvort það væri best að setja Hegerberg á bekkinn í norska landsliðinu.
„Mér finnst að við eigum að nota hana sem varamann sem getur breytt leikjum," segir Løkberg en Hegerberg er því ekki sammála.
„Það er bara hans álit," segir Hegerberg sem segist vera í góðu formi. „Það er það sem allir fótboltamenn segja. Allir fótboltamenn eru alltaf í góðu formi og alltaf til í að byrja, en það er ekki alltaf raunveruleikinn," Løkberg.
Hann bendir á tölfræði sem sýnir fram á að Hegerberg geti ekki klárað leiki, í síðustu tólf leikjum Noregs hafi hún aldrei klárað leik. Í þessum tólf leikjum hafi hún líka bara skorað tvö mörk. Løkberg vonar að Hegerberg muni láta hann éta sokk en vonandi hefur hún hægt um sig gegn Íslandi í kvöld.
Athugasemdir