Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
3-0 yfir en samt hundleiðinlegur hálfleikur - „Sóknarleikurinn er ekkert frábær"
Halli: Þýðir ekki að leggjast niður og grenja
Hemmi: Það langaði öllum í þennan sigur
Ekki áhyggjufullur þrátt fyrir níu leiki í röð án sigurs
Jói B: Mér er nákvæmlega sama hvað þér finnst um það
„Leið aðeins betur þegar ég sé besta leikmann heims klúðra eins færi"
„Ef ég hefði ekki trú á því að við gætum snúið þessu við saman þá væri ég ekki hérna"
Gunnar Már hefur miklar áhyggjur en gagnrýnir ÍR - „Spila drepleiðinlegan fótbolta"
Glódís: Maður segir þetta oft eftir leiki og oft er það algjört rugl
Pirraði stærstu stjörnu Norðmanna - „Hún bauð svolítið upp á þetta"
Siggi Höskulds: Vorum ægilegir á breikinu
Árni Guðna: Ömurleg frammistaða
Gargað á Cecilíu í miðju viðtali - „Mér heyrist þetta vera Íslendingar"
Sveindís: Finnst eiginlega bara heimskulegt að ég hafi gert þetta
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
„Sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni"
Túfa: Að mínu mati besti leikmaður deildarinnar
Sverrir Páll: Við getum stigið upp og skorað mörkin
Láki fann fyrir létti: Vicente breytti leiknum
   fös 30. maí 2025 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Árni Guðna: Ömurleg frammistaða
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ömurleg frammistaða. Við þurfum eitthvað að vinna í okkar málum," sagði Árni Freyr Guðnason, þjálfari Fylkis, eftir tap gegn Þór í Lengjudeildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór 4 -  1 Fylkir

„Grunnurinn var ekki nógu góður. Unnum ekki návígi og seinni bolta, þá vinnur þú aldrei fótboltaleik."

Árni fékk að líta gula spjaldið undir lok leiksins.

„Ég átti að hafa hemil á bekknum, það var ekki ég sem gerði neitt, það voru bara hinir sem gerðu eitthvað," sagði Árni.

Fylkir féll úr Bestu deildinni síðasta sumar en hefur aðeins safnað fimm stigum úr fyrstu fimm umferðunum í Lengjudeildinni.

„Við erum ekki með nógu mörg stig, það gefur augaleið, við ætluðum okkur meira. Sem betur fer er nóg eftir, það er bara að halda áfram," sagði Árni.
Athugasemdir
banner