Ísland leiðir í hálfleik

Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eru einu marki yfir gegn ógnarsterku landsliði Noregs sem stendur.
Lestu um leikinn: Noregur 1 - 1 Ísland
Staðan er 0-1 í leikhlé eftir að Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði laglegt mark eftir einfalda og gæðamikla skyndisókn.
Natasha Anasi kom með góðan bolta upp völlinn sem Sandra María Jessen lagði laglega fyrir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Karólína gaf frábæra sendingu yfir til vinstri þar sem Sveindís Jane var á hörkuspretti.
Sveindís gerði frábærlega að leika á Thea Bjelde í hægri bakverðinum og koma skoti á markið. Skotið var ekki sérlega fast og hefði Cecilie Fiskerstrand markvörður líklegast átt að verja, en þess í stað rúllaði boltinn undir hana og í netið.
Ísland var sterkara liðið í fyrri hálfleik og voru Stelpurnar okkar óheppnar að tvöfalda ekki forystuna fyrir leikhlé, en staðan er 0-1 í hálfleik.
Sveindís Jane kom Íslandi yfir gegn Noregi! Karólína með alvöru sendingu inn fyrir, Sveindís keyrði á Norðmenn og skotið fór í stöngina og inn. Þarna erum við! ???????? pic.twitter.com/xxmjwwzVYv
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 30, 2025
Athugasemdir