Manchester City er í samningaviðræðum við AC Milan um kaup á hollenska miðjumanninum Tijjani Reijnders. Viðræður eru sagðar þróast hratt.
AC Milan hefur bent á að félagið vilji nálægt 59 milljónum punda fyrir leikmanninn. Reijnders var einn öflugasti miðjumaður ítölsku A-deildarinnar á liðnu tímabili.
Manchester City stefnir á að styrkja lið sitt fyrir HM félagsliða og er áhugasamt um að bæta við einum eða fleiri leikmönnum í stöðu miðjumanns í sumar. Til viðbótar við Reijnders horfir félagið einnig til leikmanna eins og Morgan Gibbs-White, Dani Olmo og Rayan Cherki. Ætlunin er einnig að skoða hugsanlegar styrkingar í stöðu bakvarðar, miðvarðar og markmanns.
Formaður City, Khaldoon Al-Mubarak, sagði í gær að félagið hefði átt að vera ákafara á leikmannamarkaðinum síðasta sumar.
Athugasemdir