Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 21:24
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Keflavík, Leiknir og Selfoss steinlágu á heimavelli
Lengjudeildin
Mynd: HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þremur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Lengjudeild karla þar sem mikil markaveisla var í boði. Keflavík, Leiknir R. og Selfoss steinlágu á heimavöllum sínum.

Keflavík 0 - 3 HK
0-1 Jóhann Þór Arnarsson ('15 , víti)
0-2 Jóhann Þór Arnarsson ('19)
0-3 Tumi Þorvarsson ('89)

Lestu um leikinn

Keflavík lenti tveimur mörkum undir snemma leiks gegn HK eftir að Jóhann Þór Arnarsson skoraði tvennu með fjögurra mínútna millibili.

Fyrra markið skoraði Jóhann Þór eftir vítaspyrnu sem fékkst í kjölfar mikils vandræðagangs í varnarlínu Keflvíkinga. Þau vandræði voru áfram til staðar þegar Jóhann slapp í gegn eftir stungusendingu og skoraði skömmu síðar.

Keflvíkingar fundu engin svör í fyrri hálfleik og því var staðan 0-2 í leikhlé. Í síðari hálfleik skiptu heimamenn um gír en tókst þó ekki að skora. Keflvíkingar áttu tvö skot í slá og komust oft í góðar stöður, en gestirnir úr Kópavogi voru hættulegir í skyndisóknum og innsigluðu loks sigurinn á 89. mínútu. Tumi Þorvarsson komst þá einn í gegn og skoraði, lokatölur 0-3.

Keflvíkingar gátu skotist á topp Lengjudeildarinnar með sigri í kvöld en þess í stað sitja þeir eftir í fimmta sæti deildarinnar. Þeir eru þó aðeins tveimur stigum á eftir toppliði ÍR.

HK er í sjötta sæti, einu stigi á eftir Keflvíkingum.



Leiknir R. 2 - 6 Grindavík
0-1 Adam Árni Róbertsson ('2)
0-2 Breki Þór Hermannsson ('7 , víti)
0-3 Breki Þór Hermannsson ('44)
0-4 Kristófer Máni Pálsson ('64)
0-5 Adam Árni Róbertsson ('66)
0-6 Sindri Þór Guðmundsson ('73)
1-6 Shkelzen Veseli ('75)
2-6 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('92)

Lestu um leikinn

Leiknismenn tóku á sama tíma á móti Grindavík og skíttöpuðu. Þeir voru lentir tveimur mörkum undir eftir sjö mínútur og var staðan orðin 0-3 fyrir leikhlé.

Grindvíkingar héldu áfram að raða inn mörkunum í síðari hálfleik og var staðan orðin 0-6 eftir 73 mínútur. Adam Árni Róbertsson og Breki Þór Hermannsson höfðu þá gert sitthvora tvennuna, með aðstoð frá Kristófer Mána Pálssyni og Sindra Þór Guðmundssyni sem komust einnig á blað.

Leiknismenn sýndu lífsmark í fyrri hálfleik og voru sterkari aðilinn á köflum en tókst ekki að minnka muninn. Þeir vöknuðu aftur til lífsins á lokakaflanum þegar Shkelzen Veseli og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson settu sitthvort markið til að minnka muninn niður í fjögur mörk.

Lokatölur 2-6 fyrir Grindavík sem er um miðja deild með 7 stig eftir 5 umferðir. Leiknismenn sitja áfram á botninum með 1 stig.



Selfoss 0 - 4 Njarðvík
0-1 Oumar Diouck ('5)
0-2 Amin Cosic ('42)
0-3 Oumar Diouck ('52)
0-4 Dominik Radic ('77)

Lestu um leikinn

Að lokum tóku nýliðarnir á Selfossi á móti Njarðvíkingum og réðu ekki við gestina. Oumar Diouck skoraði fyrsta mark leiksins strax á fimmtu mínútu eftir klaufagang í varnarleik Selfyssinga.

Selfoss var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og fékk góð færi til að jafna leikinn sem tókst ekki að nýta. Þess í stað tvöfölduðu gestirnir forystuna eftir slæm mistök í varnarlínu Selfyssinga. Oumar komst í slaka sendingu og lagði boltann á Amin Cosic sem skoraði örugglega. Staðan 0-2 í leikhlé og Oumar með mark og stoðsendingu.

Oumar innsiglaði svo sigur Njarðvíkinga snemma í síðari hálfleik þegar hann skoraði þriðja mark leiksins eftir laglegt einstaklingsframtak. Selfyssingar reyndu að minnka muninn en tókst ekki og var það að lokum Dominik Radic sem setti fjórða og síðasta mark leiksins.

Dominik skoraði úr gífurlega erfiðu færi eftir langa sendingu upp völlinn svo staðan var orðin 0-4. Njarðvíkingar fengu tækifæri til að bæta fimmta markinu við en klúðruðu og þar við sat.

Njarðvík jafnar ÍR á toppi deildarinnar með þessum sigri en Selfoss er áfram meðal neðstu liða. Njarðvík á 11 stig eftir 5 umferðir, en Selfoss er aðeins með 3 stig.
Athugasemdir
banner
banner