Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 19:34
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeild kvenna: Svíar og Danir mætast í úrslitaleik
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur fyrstu leikjum kvöldsins er lokið í A-deild Þjóðadeildar kvenna, þar sem frænkur okkar frá Svíþjóð og Danmörku komu við sögu.

Sænska landsliðið gerði markalaust jafntefli úti á Ítalíu á meðan Danir höfðu betur gegn Wales á heimavelli. Pernille Harder skoraði eina markið í sigri Dana.

Liðin eru öll saman í riðli og ríkir gríðarleg spenna fyrir lokaumferðina, þar sem Danir og Svíar heyja úrslitaleik um toppsætið á meðan Ítalir geta tryggt sér annað sætið með sigri gegn Wales.

Þá fór mikið magn leikja fram í B- og C-deildunum þar sem Tékkland og Slóvakía unnu stærstu sigrana. Tékkar sigruðu 5-0 gegn Króatíu á meðan Slóvakar rúlluðu yfir Gíbraltar, 11-0.

Færeyjar gerðu jafntefli á útivelli gegn Moldóvu og eru þær færeysku búnar að tryggja sér annað sætið í riðlinum í C-deildinni. Þær munu því spila umspilsleik um sæti í B-deild.

Danmörk 1 - 0 Wales
1-0 Pernille Harder ('48)

Ítalía 0 - 0 Svíþjóð

Tékkland 5 - 0 Króatía

Rúmenía 2 - 0 Bosnía

Slóvenía 2 - 0 Grikkland

Serbía 1 - 0 Ungverjaland

Tyrkland 1 - 2 Írland

Úkraína 2 - 1 Albanía

Slóvakía 11 - 0 Gíbraltar

Kasakstan 4 - 0 Liechtenstein

Aserbaídsjan 0 - 5 Litháen

Eistland 0 - 3 Ísrael

Lettland 1 - 1 N-Makedónía

Andorra 1 - 2 Georgía

Lúxemborg 2 - 0 Armenía

Malta 1 - 0 Kýpur

Moldóva 1 - 1 Færeyjar

Athugasemdir
banner