
Noregur 1 - 1 Ísland
0-1 Sveindís Jane Jónsdóttir ('15)
1-1 Glódís Perla Viggósdóttir ('83, sjálfsmark)
0-1 Sveindís Jane Jónsdóttir ('15)
1-1 Glódís Perla Viggósdóttir ('83, sjálfsmark)
Lestu um leikinn: Noregur 1 - 1 Ísland
Noregur tók á móti Íslandi í frænkuslag í Þjóðadeild Evrópu og úr varð gríðarlega skemmtileg viðureign.
Stelpurnar okkar byrjuðu betur og tóku forystuna eftir vel útfærða skyndisókn á fimmtándu mínútu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gaf góða sendingu á Sveindísi Jane Jónsdóttur sem gerði mjög vel að klára.
Þær norsku komust í góð færi til að jafna en fundu enga leið framhjá Cecilíu Rán Rúnarsdóttur sem stóð sig vel á milli stanganna. Stelpurnar okkar svöruðu þó fyrir sig með því að skapa enn hættulegri færi en boltinn rataði ekki í netið.
Staðan var því 0-1 fyrir Ísland í leikhlé þó munurinn hefði getað verið stærri.
Heimakonur í liði Noregs byrjuðu seinni hálfleikinn betur en tókst ekki að jafna. Íslensku stelpurnar fengu færi til að tvöfalda forystuna en tókst ekki að nýta þau.
Staðan hélst 0-1 allt þar til á lokakaflanum, þegar Glódís Perla Viggósdóttir varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Þannig jafnaði Noregur metin á 83. mínútu, staðan orðin 1-1.
Glódís Perla fór fyrir góða fyrirgjöf Norðmanna sem stefndi beint á Ada Hegerberg, en boltinn fór því miður af Glódísi og í netið.
Noregur fékk dauðafæri í uppbótartíma en tókst ekki að nýta það svo lokatölur urðu 1-1. Fjórða jafntefli Íslands í fimm leikjum í Þjóðadeildinni.
Noregur situr áfram í öðru sæti, með fimm stig eftir fimm umferðir. Ísland er í þriðja sæti með fjögur stig.
Stelpurnar okkar þurfa helst sigur í lokaumferðinni gegn Frakklandi til að eiga raunhæfa möguleika á að hirða annað sætið af Norðmönnum.
Athugasemdir