Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
3-0 yfir en samt hundleiðinlegur hálfleikur - „Sóknarleikurinn er ekkert frábær"
Halli: Þýðir ekki að leggjast niður og grenja
Hemmi: Það langaði öllum í þennan sigur
Ekki áhyggjufullur þrátt fyrir níu leiki í röð án sigurs
Jói B: Mér er nákvæmlega sama hvað þér finnst um það
„Leið aðeins betur þegar ég sé besta leikmann heims klúðra eins færi"
„Ef ég hefði ekki trú á því að við gætum snúið þessu við saman þá væri ég ekki hérna"
Gunnar Már hefur miklar áhyggjur en gagnrýnir ÍR - „Spila drepleiðinlegan fótbolta"
Glódís: Maður segir þetta oft eftir leiki og oft er það algjört rugl
Pirraði stærstu stjörnu Norðmanna - „Hún bauð svolítið upp á þetta"
Siggi Höskulds: Vorum ægilegir á breikinu
Árni Guðna: Ömurleg frammistaða
Gargað á Cecilíu í miðju viðtali - „Mér heyrist þetta vera Íslendingar"
Sveindís: Finnst eiginlega bara heimskulegt að ég hafi gert þetta
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
„Sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni"
Túfa: Að mínu mati besti leikmaður deildarinnar
Sverrir Páll: Við getum stigið upp og skorað mörkin
Láki fann fyrir létti: Vicente breytti leiknum
   fös 30. maí 2025 21:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gunnar Már hefur miklar áhyggjur en gagnrýnir ÍR - „Spila drepleiðinlegan fótbolta"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum lélegir, byrjuðum leikinn ekki fyrr en eftir 20 mínútur. Varnarlega vorum við katastrófa í byrjun, leggjum upp þeirra fyrsta mark og svo skora þeir beint eftir horn. Vítið er náttúrulega grín, en svona er þetta," sagði Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, eftir 0-3 tap gegn ÍR á heimavelli í kvöld.

„Það er gríðarlegt áhyggjuefni, ÍR-ingarnir voru mjög hátt með varnarlínuna og pressuðu okkur. Að við skulum ekki finna leið yfir það er áhyggjuefni. Við tengjum ekki saman sendingar, við þurfum að snúa þessu við, það er alveg ljóst."

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  3 ÍR

Gunnar viðurkennir að það hafi komið sér á óvart að ÍR hefði mætt með pressu til leiks. „Við erum bara að gera þetta illa."

„Þeir spila handboltavörn út um allan völl og svo dæma þeir 'soft' víti og svo framvegis. Þetta var drepleiðinlegur leikur og ÍR spilar drepleiðinlegan fótbolta, ég ætla ekki að fara ofan á því, en þeir voru miklu betri í því sem skiptir máli; í að verja markið sitt og skora mörk."

„Það bara stóð ekki steinn yfir steini í okkar spilamennsku í dag."


Þjálfarinn var spurður út í dómgæsluna, hann nefndi hana fyrr í viðtalinu og var sýnilega ósáttur með hana á hliðarlínunni. „Alveg klárt að ég var ósáttur, það mátti hrinda, spila handboltavörn út um alla vörn og svo 'soft' víti. Þegar maður ræðir þetta við dómarana í hálfleik þá fær maður þau svör að þetta sé fótbolti. Það er í aðra áttina. Ég nenni ekki að kvarta yfir dómgæslunni í þessari deild."

Fjölnir er með tvö stig eftir fimm leiki. „Við erum að koma saman, Orri (Þórhalls) er nýkominn og okkur mun vaxa ásmeginn þegar líður á sumarið. Eðlilega er frammistaðan upp og niður hjá ungri sóknarlínu."

Viðtalið við Gunnar Már má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir
banner