Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 23:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Oliver í nýju hlutverki - „Leitað lausna til þess að fækka mörkum á okkur"
Oliver sneri aftur á Skagann fyrir síðasta tímabil.
Oliver sneri aftur á Skagann fyrir síðasta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er örvfættur varnarmaður sem fæddur er árið 2002.
Hann er örvfættur varnarmaður sem fæddur er árið 2002.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Níunda umferðin spilaðist þannig að þrátt fyrir sigur þá er ÍA áfram í botnsæti deildarinnar. Liðið á næst leik á sunnudag þegar ÍBV kemur í heimsókn. Fótbolti.net ræddi við Jón Þór Hauksson, þjálfara ÍA, í dag og var hann spurður út í komandi leik.

„Það eru þrjú stig í boði, gamla klisjan, við viljum vinna alla leiki á heimavelli. Fyrst og fremst viljum við halda áfram að bæta þá þætti sem þarf að bæta og halda áfram að vinna í þeim hlutum sem við höfum verið að vinna vel í undanfarið. Það sem er mikilvægast fyrir okkur í augnablikinu er að halda áfram að bæta okkur. Það er alveg sama með þann leik eins og alla aðra, þannig er bara staðan sem við erum í," segir Jón Þór.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 ÍA

Tveir miðjumenn hjá Skagamönnum eru að glíma við meiðsli. Steinar Þorsteinsson fór til sérfræðings í dag, þjálfarinn vonast eftir því að hann snúi til baka eftir landsleikjafríið. Albert Hafsteinsson er þá meiddur aftan í læri og einhverjar vikur eru í hann.

Oliver Stefánsson hefur verið að spila í vinstri vængbakvarðarstöðunni í undanförnum leikjum.

„Mér hefur fundist það ganga virkilega vel. Oliver er auðvitað fyrst og fremst hafsent, en hefur spilað þrjá síðustu leiki sem vængbakvörður. Það er ekkert leyndarmál að við höfum verið að leita lausna til þess að fækka mörkum á okkur. Við höfum fengið alltof mikið af mörkum á okkur í sumar. Við ákváðum að prófa þetta, vitandi að Oliver myndi vinna sig inn í þessa stöðu sóknarlega. Hann er með gríðarlega góðan vinstri fót, hann hefur mjög góðan leikskilning og tekur yfirleitt alltaf góðar ákvarðanir með boltann. Mér hefur fundist hann leysa þetta hlutverk gríðarlega vel," segir Jón Þór.

ÍA hefur fengið á sig 21 mark í leikjunum níu til þessa. Tíundi leikurinn, leikurinn gegn ÍBV á sunnudag hefst klukkan 18:00 á ELKEM-vellinum.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir
banner
banner