„Frábær leikur, skemmtilegur leikur. Ákefð og hraði og færi báðu meginm þannig bara aðalega það." sagði Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar eftir jafnteflið við Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 1 Stjarnan
„Þeir sóttu á okkur þarna einhverntíman á síðustu 10 mínútunum og svo vorum við mikið í kringum teiginn þeirra og ógnðuðum ekkert síður en bara heilt yfir áhugaverður og skemmtilegur leikur."
„Ef ég man rétt þá fengu þeir öll sín færi í stöðunni eitt núll, allaveganna megnið af þeim. Við fáum færi í stöðunni 1-1 og þá vill maður bara klára þetta."
„Það var rosalegt hugrekki og við erum einn á einn útum allan völl, við skiljum eftir einn á einn þarna til baka eins og við ætluðum að gera og auðvitað komast þeir í gegnum pressuna og komast upp völlinn en hugrekkið til fyrirmyndar, ákefðin frábær og bara liðsheild og fullt af fínum spilköflum líka."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























