Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   sun 30. júní 2013 23:25
Magnús Þór Jónsson
Andri Geir: Það er ekki séns að við séum að fara að falla.
Hrikalega svekkjandi að fara stigalaus á Skagann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Geir Alexandersson miðvörður Skagamanna var ekki upplitsdjarfur að leik loknum í Ólafsvík í kvöld.

"Það er hrikalega svekkjandi að fara stigalaus á Skagann, sérstaklega eftir hvernig hefur gengið"

Andri hefði viljað fá eitthvað út úr leik kvöldsins.

"Svona eftir á að hyggja hefðum við verið sáttir við stig út úr leiknum.  Okkur fannst þeir ekkert vera að skapa.  Svo fá þeir víti eftir okkar mistök og síðan ná þeir frákastinu sem eru önnur mistök hjá okkur og klára það sem er hrikalega svekkjandi."

Hann var sammála því að heimamenn hefðu náð tökum á leiknum þegar á hann leið.

"Já, leikurinn þróaðist þannig að þeir voru aðeins meira á okkur í seinni hálfleik."

Andri er ekkert farinn að örvænta þó lítið gangi hjá þeim gulu og glöðu.

"Þetta er búið að ganga illa og það fellur ekkert með okkur.  En við vitum alveg að þetta kemur og við erum ekkert að hugsa um það neitt að við séum að fara að falla.  Það er ekki séns."

Frekar er rætt við Andra í viðtalinu sem fréttinni fylgir.
Slapp
banner
banner
banner