Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. maí 2012 10:30
Magnús Már Einarsson
Zlatko Krickic í Leikni (Staðfest)
Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson
Leiknir R. hefur fengið miðjumanninn Zlatko Krickic til liðs við sig en hann kemur til félagsins frá ÍA.

Zlatko, sem er tvítugur, lék með Víkingi R. og HK í yngri flokkunum á sínum tíma.

Eftir að hafa leikið níu leiki með HK í fyrstu deildinni árið 2009 fór Zlatko til Fredrikstad í Noregi.

Hann gekk til liðs við ÍA í fyrravor og lék einn leik með liðinu í fyrstu deildinni.

Leiknismenn hafa verið að styrkja sveit sína fyrir komandi átök en í gær kom Brynjar Benediktsson einnig til félagsins á láni frá FH.

Bæði Zlatko og Brynjar gætu leikið með Leikni gegn Þór í fyrstu umferðinni í 1. deildinni í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner