Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 26. september 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho var smeykur þegar Jones fór á vítapunktinn
Phil Jones klikkaði á vítapunktinum.
Phil Jones klikkaði á vítapunktinum.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segist hafa verið smeykur þegar vítaspyrnukeppni liðsins gegn Derby dróst á langinn í enska deildabikarnum í gær.

Derby vann vítaspyrnukeppnina eftir að Scott Carson varði spyrnu frá varnarmanninum Phil Jones.

„Við fórum í vítaspyrnukeppni og einhver varð að klikka," sagði Mourinho.

„Þegar ég sá okkur fara í sjöttu og sjöundu spyrnu þá vissi ég að við værum í vandamálum með Jones og Eric (Bailly)."
Athugasemdir
banner
banner
banner