Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. desember 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Van Dijk slökkti ljósin þegar Alisson var í viðtali
Mynd: Getty Images
Alisson, markvörður Liverpool, var í viðtali við LFC TV í kjölfarið á sigri Liverpool á Salzburg í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld.

Liverpool sigraði leikinn, 0-2, og sigraði því riðilinn. Leikurinn var úrslitaleikur um hvort liðið færi áfram en Liverpool dugði jafntefli til að verða í öðru sæti riðilsins.

Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, var í gríngír eftir leik og slökkti ljósin þar sem Alisson var í viðtali.

Báðum þótti þetta ansi skondið, allir glaðir eftir að hafa haldið hreinu í mikilvægum leik.


Athugasemdir
banner
banner