Ragnar Sigurðsson, varnarjaxl íslenska landsliðsins, gekk á dögunum í raðir enska B-deildarliðsins Fulham frá Krasnodar í Rússlandi.
„Það er draumur að rætast hjá mér. Þó þetta sé Championship-deildin tel ég þetta rétt skref. Það voru fullt af góðum hlutum í Rússlandi og svo aðrir hlutir sem maður var ekki að „fíla" eins og er eðlilegt í svona framandi landi," segir Ragnar.
„Á heildina litið var dvöl mín í Rússlandi verið helvíti skemmtileg en það vantaði meiri gleði í þetta á þessu tímabili. Það er mun hærra tempó og öðruvísi stíll á Englandi, ég hef farið á tvo fótboltaleiki með liðinu og það var nákvæmlega eins og ég hafði ímyndað mér."
„Markmið liðsins er að komast upp í úrvalsdeildina. Þjálfarinn (Slavisa Jokanovic) er auðmjúkur og það er stemning í kringum hann. Hann sagði mér að planið væri að reyna að komast upp á þessu tímabili, ef það tekst ekki er bara reynt á næsta ári. Hann er raunsær kall."
Heimir er alveg með þetta
Ragnar ræddi við Fótbolta.net á hóteli íslenska landsliðsins í Frankfurt í Þýskalandi en þar er hópurinn að búa sig undir fyrsta leik í undankeppni HM, leik gegn Úkraínu ytra á mánudag. Ragnari líður vel í Þýskalandi.
„Það fer frábærlega um okkur hérna. Þetta er frábært hótel, risastórt og allt til alls," segir Ragnar sem viðurkennir að það sé furðuleg tilfinning að vera að hefja nýja undankeppni eftir allt það sem gerðist í Frakklandi.
„Það er smá skrítið en þetta er eins og allir aðrir undankeppnisleikir. Við þekkjum þetta og maður þarf að komast í gírinn. Við höfum spilað á móti svona þjóðum og þekkjum þetta alveg."
Heimir Hallgrímsson er nú einn aðalþjálfari og lýst Ragnari vel á það.
„Heimir er alveg með þetta. Lars náði að smita sigur-hugarfari í okkur og ég held að það hafi náð að festast í okkur," segir Ragnar en fáum við ekki að sjá íslenska landsliðið eins og við þekkjum það á mánudaginn?
„Ég vona það. Auðvitað er það stefnan en maður veit aldrei hvað gerist í fótboltanum."
Viðtalið við Ragnar var tekið á liðshótelinu í Frankfurt í dag og má sjá það í heild í sjónvarpinu hér að ofan.























